E. Sigurðsson tók þátt í Svansvottuðum endurbótum á Grandaborg

E. Sigurðsson ehf. kom að umfangsmiklum endurbótum á leikskólanum Grandaborg við Boðagranda í Reykjavík. Fyrirtækið tók þátt í verkefninu frá maí 2025 og annaðist húsasmíði og umsjón vinnusvæðis á lokastigi framkvæmdanna. Reykjavíkurborg hlaut Svansvottun fyrir endurbæturnar í maí 2026.

Umfangsmiklar endurbætur á Grandaborg

Endurbæturnar voru hluti af viðhaldsátaki Reykjavíkurborgar og fólu í sér heildarendurnýjun húsnæðisins. Meðal helstu verkþátta voru breytingar á innra skipulagi, endurnýjun innveggja, hurða og loftklæðninga, uppsetning innréttinga og endurbætur á loftræsingu og öðrum húskerfum.

Þegar E. Sigurðsson ehf. kom að verkefninu voru framkvæmdir þegar langt komnar. Fyrirtækið vann meðal annars að úrbótum og lokafrágangi framkvæmdanna.

Endurbótunum var að mestu lokið í desember 2025 og tók leikskólinn aftur til starfa í febrúar 2026.

Sérstakar kröfur vegna Svansvottunar

Svansvottun endurbóta á byggingum felur meðal annars í sér kröfur um efnisval, heilnæma innivist, rakaöryggi og meðhöndlun byggingarúrgangs.

E. Sigurðsson ehf. bar ábyrgð á því að byggingarefni sem fyrirtækið notaði uppfylltu viðeigandi kröfur Svansins og hlytu tilskilin samþykki. Jafnframt þurfti að halda utan um upplýsingar um efnin og skrá þær vegna vottunarinnar.

Byggingarúrgangur frá vinnusvæðinu var jafnframt flokkaður og vigtaður og upplýsingar um hann skráðar í samræmi við kröfur Svansins.

E. Sigurðsson ehf. þakkar Reykjavíkurborg og öðrum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf við endurbæturnar. Það er ánægjulegt að sjá endurnýjað húsnæðið aftur í notkun.

Svansvottunarskilti á útvegg leikskólans Grandaborgar í Reykjavík
Next
Next

E. Sigurðsson ehf. meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo 2026