SJÁLFBÆRNISTEFNA

Hjá E. Sigurðsson ehf. eru sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð mikilvægir þættir í rekstri og mannvirkjagerð. Starfsemi fyrirtækisins hefur áhrif á umhverfi og samfélag og því leggjum við áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda, vönduð vinnubrögð og góða umgengni við framkvæmdir.

Ábyrgur rekstur og sjálfbærni

Markmið fyrirtækisins er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar, stuðla að öruggum vinnustöðum og taka mið af langtímahagsmunum verkkaupa og samfélagsins við skipulagningu og framkvæmd verkefna.

Sjálfbærnistefnan byggist á þremur meginstoðum:

  • umhverfis- og loftslagsábyrgð,

  • samfélagslegri ábyrgð,

  • ábyrgum stjórnarháttum.

Samfélagsábyrgð og mannauður

E. Sigurðsson ehf. leggur áherslu á heiðarlega viðskiptahætti, fagleg samskipti og sanngjarna meðferð starfsfólks og samstarfsaðila. Öryggi, gæði og ábyrgð eru höfð að leiðarljósi í samskiptum við verkkaupa, undirverktaka og aðra sem koma að verkefnum fyrirtækisins.

Starfsfólk gegnir lykilhlutverki í starfseminni. Fyrirtækið leggur áherslu á öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk nýtur virðingar, jafnræðis og tækifæra til starfsþróunar.

Við framkvæmdir er jafnframt lögð áhersla á góða umgengni, skýr samskipti og tillitssemi við íbúa, nærliggjandi starfsemi og aðra sem kunna að verða fyrir áhrifum framkvæmdanna.

Umhverfisábyrgð og nýting auðlinda

E. Sigurðsson ehf. vinnur að því að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmda og bæta nýtingu efna, búnaðar og annarra aðfanga.

Áhersla er meðal annars lögð á:

  • flokkun úrgangs og endurnýtingu þar sem því verður við komið,

  • hagkvæma nýtingu byggingarefna og annarra aðfanga,

  • ábyrg innkaup og efnisval,

  • skilvirka nýtingu véla, tækja og búnaðar,

  • umbætur á verklagi sem geta dregið úr sóun og neikvæðum umhverfisáhrifum.

Umhverfis- og samfélagssjónarmið skulu höfð til hliðsjónar við undirbúning, framkvæmd og afhendingu verkefna. Fyrirtækið tekur mið af viðeigandi faglegum viðmiðum og vinnur að því að bæta verklag sitt í samræmi við þróun byggingariðnaðarins og þær kröfur sem gerðar eru til ábyrgs rekstrar.

Sjálfbærnistefna E. Sigurðsson ehf. styður við markmið fyrirtækisins um vandaða mannvirkjagerð, ábyrga auðlindanýtingu og traust samstarf við verkkaupa og aðra hagaðila.