E. Sigurðsson ehf. meðal Framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo 2026
E. Sigurðsson ehf. hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Viðurkenningin er veitt íslenskum fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, rekstrarafkomu og stöðugleika. Hún undirstrikar traustan rekstrargrundvöll fyrirtækisins og áherslu þess á ábyrga stjórnun og langtímauppbyggingu.
Umfangsmiklum framkvæmdum E. Sigurðsson við Laugarvatn Fontana lokið
E. Sigurðsson ehf. hefur lokið umfangsmikilli uppbyggingu og endurbótum við Laugarvatn Fontana. Verkefnið fól meðal annars í sér nýjar laugar, gufu- og eimböð og endurnýjun eldri mannvirkja. Framkvæmdirnar hófust vorið 2025 og ný og endurbætt aðstaða var opnuð gestum 1. ágúst 2026.