Umfangsmikil uppbygging Laugarvatn Fontana á lokastigi

Umfangsmiklar framkvæmdir við uppbyggingu og endurbætur á Laugarvatn Fontana eru nú á lokastigi og stefnt er að opnun nýrrar og verulega endurbættrar aðstöðu um miðjan júní. Með framkvæmdunum verður aðstaðan efld til muna og betur í stakk búin til að taka á móti gestum allt árið um kring.

Verkið, sem E. Sigurðsson ehf. hefur unnið að frá vori 2025, felur í sér víðtæka stækkun og endurnýjun mannvirkja. Heildarstærð viðbygginga nemur um 1.120 fermetrum, nýjar laugar eru um 600 fermetrar og gufa og sána samtals um 69 fermetrar. Verkefnið nær einnig til jarðvinnu, uppsteypu, lagnavinnu og fullnaðarfrágangs innan- og utanhúss.

Framkvæmdir samhliða rekstri settu sérstakan svip á verkefnið

Verkefnið er tæknilega flókið og krefst mikillar nákvæmni, ekki síst vegna samspils nýrra mannvirkja við eldri byggingar og viðkvæmar náttúrulegar aðstæður á svæðinu.

Framkvæmdir fóru fram í áföngum þar sem eldri aðstaða var haldin opin til október 2025. Sú nálgun kallaði á aukna samhæfingu, öryggisráðstafanir og nákvæma verkstýringu, þar sem stór hluti framkvæmdarinnar fór fram samhliða daglegum rekstri. Með þessu móti tókst að stytta heildarframkvæmdatíma án þess að loka starfseminni frá upphafi.

Nú stendur yfir lokafrágangur áður en aðstaðan verður opnuð að nýju.

„Krefjandi aðstæður en verkefnið gengið vel“

Að sögn Halldórs Bogasonar, verkefnastjóra hjá E. Sigurðsson ehf., hefur verkefnið reynt á alla þætti framkvæmdarinnar:

„Við vinnum á svæði þar sem þarf að samræma nýbyggingar, endurbætur og náttúrulegar aðstæður á sama tíma. Það sem gerir verkefnið sérstaklega krefjandi er að stór hluti þess fór fram á meðan rekstur var enn í gangi. Það þýðir að við þurftum að skipuleggja framkvæmdina í smáatriðum, stýra aðgengi, tryggja öryggi gesta og halda uppi framvindu án þess að það bitnaði á upplifun þeirra sem sóttu staðinn.

Á sama tíma er um að ræða tæknilega flókna uppbyggingu þar sem kröfur um gæði, nákvæmni og endingartíma eru miklar. Verkefnið hefur gengið vel og við erum ánægð með þann árangur sem hefur náðst.“

Ný upplifun byggð á náttúru og sögu svæðisins

Endurbæturnar fela meðal annars í sér nýja sánu með útsýni yfir vatnið, nýja hveragufu sem byggir á sögulegri nýtingu uppsprettna á svæðinu og nýjar laugar sem liggja að vatnsbakkanum og bjóða upp á fjölbreytt hitastig og upplifun. Einnig hefur verið unnið að uppbyggingu nýs laugabars og tæknirýma, auk umfangsmikils lóðarfrágangs.

Við verklok verður aðstaða Laugarvatns Fontana verulega endurbætt og styrkir enn frekar stöðu svæðisins sem áfangastaðar fyrir bæði innlenda og erlenda gesti.



Previous
Previous

Sterk mannvirki byggja á traustum undirstöðum. Sama á við um samfélagið.

Next
Next

Kveðja frá E. Sigurðsson ehf. í tilefni af Verkalýðsdeginum