Fyrsta skóflustungan tekin að sérhönnuðu íbúðarhúsnæði í Brekknaási
Uppbygging nýs íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk hafin
Í dag þann 9. ágúst 2023 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju íbúðarhúsnæði við Brekknaás 6 í Reykjavík sem ætlað er fötluðu fólki á vegum Reykjavíkurborgar.
Við athöfnina voru meðal annars viðstödd Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, auk væntanlegra íbúa hússins.
Verkefnið er hluti af uppbyggingaráætlun Reykjavíkurborgar um sérhæft og aðgengilegt húsnæði fyrir fatlað fólk með áherslu á að bæta aðbúnað, stuðning og lífsgæði íbúa.
Hönnun byggð á þörfum framtíðaríbúa
Við hönnun hússins var lögð sérstök áhersla á þarfir notenda og gott aðgengi. Unnin var ítarleg þarfagreining í samstarfi við fagfólk og aðstandendur sem nýtt var við ákvarðanir um skipulag, efnisval, hljóðvist og dagsbirtu.
Húsið verður um 640 fermetra á einni hæð og mun, auk íbúða, innihalda aðstöðu fyrir starfsfólk og þjónustu sem tengist daglegum stuðningi við íbúa.
Fjölbreytt teymi að verkefninu
Hönnun verkefnisins er í höndum Teiknistofunnar Stiku og Birta Fróðadóttir arkitekts. Lóðahönnun er unnin af Landmótun og Hnit verkfræðistofa sér um verkfræðihönnun burðarþols, lagna og rafkerfa.
E. Sigurðsson ehf. annast byggingu mannvirkisins og VSB framkvæmdir sjá um byggingastjórn og byggingaeftirlit.
Hjá E. Sigurðsson ehf. erum við stolt af því að taka þátt í verkefni sem hefur mikilvægt samfélagslegt gildi og mun skapa betri aðstöðu og aukin lífsgæði fyrir framtíðaríbúa hússins.